Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sett Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála, í embætti ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins til 31. mars næstkomandi.

Guðmundur Árnason lét af embætti ráðuneytisstjóra um áramót og verður senn auglýst eftir nýjum ráðuneytisstjóra, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Tómas var skipaður skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu árið 2018. Áður hafði hann m.a. verið stjórnandi á EFTA-skrifstofunni í Brussel og unnið að efnahags- og fjármálamarkaðsmálum í stjórnarráðinu frá árslokum 2008.

Tómas er með meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics.