Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á blaðamannafundi fyrir skömmu að samskiptin við Íran væru góð þessa stundina.

Forsetinn hélt fundinn með Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (Nato).

Trump sagði að það síðasta sem Íranir vilji nú er að auðga úran. Þeir vilji jafna sig. Trump sagði jafnframt að Bandaríkin muni ekki leyfa Írönum að byggja her sinn upp aftur.

Ró hefur komist á markaði eftir að vopnahlé náðist eftir 12 daga stríð Ísraela og Írana. Olíuverð er nú stöðugt en hefur hækkað lítillega í dag. Verðið á WTI hráolíu er 64,97 dalir og fatið af Brent Norðursjávarolíu kostar nú 65,1 dal.