Ferðatæknifyrirtækið Travelshift skilaði 270 milljóna króna hagnaði árið 2022. Í tilkynningu frá félaginu segir að tekjur félagsins námu 5,2 milljörðum á árinu og er það tvöföldun frá árinu á undan.
Félagið rekur meðal annars Guide to Iceland og Guide to Europe, ásamt fleiri markaðstorgum.
Í lok árs 2022 voru heildareignir Travelshift 3,6 milljarðar og handbært fé 1,3 milljarðar. Eigið fé félagsins nam 1,3 milljörðum og var eiginfjárhlutfall 36%.
Travelshift hefur fjárfesti einnig í þróun og rannsókn á gervigreind fyrir 947 milljónir króna árið 2022. Til samanburðar fjárfesti fyrirtækið 488 milljónir króna árið áður.
“Á næstu misserum munum við svo kynna nýja tækni sem ferðamenn hafa ekki séð áður og mun gera félaginu kleift að ná markmiðum sínum um vöxt á evrópskum ferðamarkaði,” segir Jakob Ásmundsson, fjármálastjóra Travelshift.