Unbroken hefur landað samningi við dreifingarfyrirtækið Hisa Hisa, sem er leiðandi í dreifingu á lyfjum og lækningatækjum í Miðausturlöndum og Tyrklandi. Með samningnum hyggst fyrirtækið styrkja fótfestu Unbroken í þessum heimshluta.
Höfuðstöðvar Hisa Hisa eru í Dubaí og svæðisskrifstofur í Istanbúl og Kaíró. Það telur til stærstu og virtustu dreifingarfyrirtækja á sínu sviði á svæðinu.
„Samstarfið við Hisa Hisa gerir Unbroken kleift að nýta víðtæka þekkingu þess í þessum löndum, sem og sterkt sölunet og gott orðspor á markaði,“ segir Steinar Kristjánsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Unbroken.
Hisa Hisa vinnur með virtum alþjóðlegum fyrirtækjum. Þar á meðal Goli Nutrition, DSM, Evonik Industries, Lifescan, Kirsch Pharma, AB Biotics og Orthomol.
„Eftirspurn neytenda eftir vörum sem bæta heilsu og líðan hefur aukist verulega í þessum heimshluta. Þar, eins og víðast í vestrænum löndum, aukast útgjöld til heilbrigðisþjónustu sem kalla á lífsstílsbreytingar og vörur eins og Unbroken,“ bætir Steinar við.