Styrkás hf., félag í 70% eigu Skeljar fjárfestingarfélags, skrifaði í dag undir kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í sex dótturfélögum Máttarstólpa ehf., að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Heildarvirði seldu félaganna er um 3,55 milljarðar króna. Að frádregnum nettó vaxtaberandi skuldum og stöðu nettó veltufjármuna er endanlegt kaupverð tæplega 3 milljarðar króna.

Félögin sex sem um ræðir eru: Stólpi Gámar, Stólpi Smiðja, Klettaskjól ehf., Stólpi ehf., Tjónaþjónustan ehf. og Alkul ehf.

Hluti af kaupunum er fasteign að Sægörðum 15, 104 Reykjavík og lóðir að Gullhellu 2 og Tinhellu 2, 4, 6, 8, 10 og 12 í Hafnarfirði sem eru rúmlega 60 þúsund fermetrar að stærð. Heildarvirði fasteigna og lóða í viðskiptunum er 1.870 milljónir króna.

Greint var frá samkomulagi um kaupin í nóvember síðastliðnum en þau voru háð fyrirvara um endanlegan kaupsamning vegna viðskiptanna, fjármögnun, niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Niðurstöður lögfræðilegrar, skattalegrar og fjárhagslegrar áreiðanleikakannana liggja nú fyrir en kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlits.

Ásgeir eignast 8,7% hlut í Styrkási

Við afhendingu hins selda verður 55% af kaupverði eigin fjár hins selda greitt með reiðufé og 45% greitt með nýjum hlutum í Styrkási. Virði hlutafjár Styrkáss í viðskiptunum er 1,1945 krónur á hlut sem er 17,7% yfir bókfærðu virði bréfanna í síðasta hálfsársuppgjöri Skeljar.

Máttarstólpi, sem er í eigu Ásgeirs Þorlákssonar, eignast 8,7% hlut í Styrkási eftir kaupin.

EBITDA hagnaður Styrkáss verði 2,7 milljarðar

Fram kemur að samanlagður hagnaður fyrir afskriftir, skatta og fjármagnsliði (EBITDA án áhrifa IFRS 16) hinna keyptu félaga hafi verið 663 milljónir króna árið 2023 samkvæmt drögum að ársuppgjöri.

Eftir kaupin er áætlað að EBITDA hagnaður Styrkáss samstæðunnar árið 2024 verði um 2,7 milljarðar króna.

„Með kaupum á Stólpa Gámum og tengdum félögum er mikilvægt skref stigið til að útvíkka þjónustu Styrkáss og byggja upp þriðja kjarnann í rekstri félagsins á sviði eignaumsýslu og leigustarfsemi,“ segir Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkáss.

„Stólpi Gámar er leiðandi í gáma- og húseiningalausnum fyrir atvinnulífið og einstaklinga, gámaviðgerðum og tjónaþjónustu fyrir tryggingafélög. Framundan er mikil þörf fyrir snjallar og hagkvæmar húsnæðislausnir þar sem Stólpi Gámar hefur getið sér orð fyrir bæði gæði og framúrskarandi þjónustu. Mikill styrkur er að því að fá Ásgeir Þorláksson í hóp hluthafa Styrkáss til að vinna að þeirri vegferð sem framundan er við að efla Styrkás enn frekar og búa í haginn fyrir skráningu í kauphöll fyrir árslok 2027.”