Tónlistarútgáfufyrirtækið Universal Music Group tilkynnti í byrjun vikunnar um nýjan „margra ára“ samning við streymisveituna Spotify.

Í tilkynningu frá Universal segir að samningurinn leggi áherslu á vöxt, nýsköpun og stuðli að velgengni listamanna og lagahöfunda. Samningurinn tryggi að tónlistarmenn fái sanngjarna greiðslu fyrir hlustun. Þá séu ýmsar nýjungar á leiðinni á borð við nýjar áskriftarleiðir í gegnum Spotify.

Gengi bréfa Universal Music Group hefur hækkað um 10% í þessari viku í Kauphöllinni Euronext í Amsterdam.