Ísland gegnir nú formennsku í ráðgjafarnefnd EFTA og tók Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, við sem formaður nefndarinnar nú í janúar.
Ráðgjafarnefnd EFTA er samstarfs- og samráðsvettvangur aðila vinnumarkaðarins í EFTA-ríkjunum fjórum. Nefndin er ráðgefandi fyrir fastanefnd EFTA og ráðherraráð EFTA, þar sem utanríkisráðherrar EFTA- ríkjanna sitja, í málefnum fríverslunar- og EES-samningsins.
„Þetta snýr meðal annars að framkvæmd og virkni EES- samningsins og löggjöf sem innleidd er inn í EES-samninginn frá Evrópusambandinu, áður en hún kemur til kasta Alþingis“ segir Sigríður í samtali við Viðskiptablaðið.
Hún segir mikil tækifæri felast í þátttöku Íslands í nefndinni og vill nýta þau betur, sér í lagi í tengslum við hagsmunagæslu gagnvart regluverki ESB og að verja samkeppnishæfni Íslands.
„Íslenskt atvinnulíf gegnir formennsku í nefndinni á átta ára fresti þannig að það skiptir máli að nýta þetta ár til þess að hafa áhrif í þágu hagsmuna Íslands en einnig til að hafa áhrif innan EFTA samstarfsins enda EFTA ríkin með mjög sameiginlega hagsmuni,“ segir Sigríður.
Forgangsmál nefndarinnar eru ákveðin á hverju hausti fyrir komandi ár og tók Sigríður þátt í að móta þau síðastliðið haust.
„Markmið nefndarinnar í ár er að hafa með markvissum hætti áhrif á áherslu og stefnumál innan EFTA og EES á sviðum sem hafa áhrif á atvinnulíf og vinnumarkað,“ segir Sigríður.
Í ljósi þrjátíu ára afmælis EES-samningsins mun ráðgjafarnefndin einnig vinna skýrslu um lærdóm af samstarfinu sem verður kynnt á fundi EES-ríkjanna á Íslandi í maí næstkomandi.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði