Urriðaholt ehf., sem á og leigir út land í samnefndu hverfi í Garðabæ, hagnaðist um 191 milljón króna í fyrra, þar af 157 milljónir vegna hlutabréfasölu.
Er það minnsti hagnaður félagsins síðan 2018, en söluhagnaður fastafjármuna – sem ekki var að skipta í þetta sinn – bar afkomuna uppi árin þar á milli. Alls nam söluhagnaðurinn 3 milljörðum króna á því fjögurra ára tímabili og skilaði félaginu hagnaði upp á 2,4 milljarða.
Stefnir í 1,3 milljarða arð til Oddfellow-sjóðs frá 2020
Lögð er til 500 milljóna króna arðgreiðsla, en ekkert var greitt út í fyrra þrátt fyrir 423 milljóna króna hagnað árið áður.
325 milljónir tillagðrar arðgreiðslu munu renna til Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa sem frá stofnun félagsins 2005 hefur átt í því 65% eignarhlut og mun þá alls hafa þegið ríflega 1,8 milljarða króna í arð, þar af 1,3 milljarða frá árinu 2020.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út á miðvikudag. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér.