Verðbólga mældist 8,5% í september hér á landi á mælikvarða samræmdrar vísitölu neysluverðs. Í 33 Evrópuríkjum þar sem verðbólga er mæld á þennan samræmda mælikvarða var verðbólga einungis hærri í 5 ríkjum. Þau ríki eru allt fyrrum Austantjaldsþjóðir utan Tyrklands þar sem nú mælist 62% verðbólga.

Ein af ástæðum fyrir hærri verðbólgu hér á landi en t.d. í löndum evrusvæðisins liggur í húsnæðisliðnum en hækkun á vaxtakjörum til heimila hér á landi skilar sér tímabundið í hærri verðbólgu. Þessi liður hefur hækkað um 8,7% hér á landi en lækkað um 2,4% á evrusvæðinu. Einnig mælist töluvert meiri verðbólga á hótelum og veitingastöðum sem má rekja til meiri eftirspurnar en herbergjanýting hér á landi er mjög góð miðað við mörg önnur lönd. Þessi liður hafði hækkað um 13,6% hér á landi en 6,7% á evrusvæðinu.

Ísland og Tyrkland einu löndin þar sem verðbólga hefur ekki hjaðnað

Verðbólga á evrusvæðinu var 4,3%, 5% í ríkjum EES og 4,9% í ríkjum ESB. Verðbólga var að meðaltali 2,5% í löndum Skandinavíu. Verðbólga var langlægst í Danmörku eða 0,6% og skar landið sig nokkuð frá hinum löndunum en þar lá hún á bilinu 2,8-3,7%. Hæst var hún í Svíþjóð 3,7% en þessar tölur má lesa nánar af vef Hagstofunnar.

Ísland og Tyrkland eru einu löndin í hópi þessara 33 ríkja þar sem verðbólga er hærri nú en hún var í janúar. Sums staðar hefur hún gengið mikið niður. Hún var 8,7% á evrusvæðinu í janúar en 4,3% í dag og hefur því lækkað um 4,4 prósentustig. Verðbólga var að meðaltali 8,5% í löndum Skandinavíu í janúar en hún er 2,5% í dag.