Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% á milli apríl og maí hefur nú hækkað um 3,8% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólgan dróst saman um 0,4 prósentur frá fyrri mánuði þegar hún mældist 4,2%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,02% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,7% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis dróst saman um 0,5 prósentustig milli mánaða en hún mældist 3,2% í apríl.

Í tilkynningu Hagstofunnar segir að verð á mat og drykkjarvörum hafi hækkað um 0,69% á milli mánaða og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, svokölluð reiknuð húsaleiga, hafi hækkað um 0,73%. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 7,30%.

https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/verdlag/visitala-neysluverds-i-mai-2025/

Í samræmi við spár bankanna

Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans höfðu báðar spáð því að verðbólgan myndi hjaðna úr 4,2% í 3,8-3,9% í maí.

Greining Íslandsbanka hafði spáð því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,2% og að tólf mánaða verðbólgan myndi mælast 3,8%. Hagfræðideild Landsbankans hafði spáð 0,36% hækkun vísitölunnar og að verðbólga færi niður í 3,9%.

Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 20. ágúst næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti um 0,25 prósentur, úr 7,75% í 7,5% við síðustu vaxtaákvörðun í síðustu viku.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson gáfu skýrt til kynna að næstu vaxtaákvarðanir ráðist af því hvort verðbólgan haldi áfram að hjaðna.