Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27% á milli desember og janúar hefur nú hækkað um 4,6% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólgan hjaðnar um 0,2 prósentur frá fyrri mánuði þegar hún mældist 4,8%.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,29% milli mánaða og hefur nú hækkað um 3,0% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis jókst um 0,2 prósentustig milli mánaða.
Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að verð á áfengi og tóbaki hafi hækkað um 3,9% milli mánaða, kostnaður vegna rafmagns og hita hækkaði um 3,5% og verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,6%.
Þá séu vetrarútsölur víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 6,9% milli mánaða, húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. um 4,6% og raftæki um 9,5%. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 16,1% milli mánaða.
Hagfræðideild Landsbankans hafði spáð því að vísitala neysluverðs myndi lækka um 0,32% milli mánaða og að ársverðbólga myndi hjaðna úr 4,8% í 4,6%. Greining Íslandsbanka spáði hins vegar því að verðbólgan myndi aukast um 0,1 prósentu, og fara úr 4,8% í 4,9%.
Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er á miðvikudaginn næsta, 5. febrúar. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti úr 9,0% í 8,5% við síðustu vaxtaákvörðun þann 20. nóvember síðastliðinn.