Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,37% á milli febrúar og mars hefur nú hækkað um 3,8% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólgan hjaðnar um 0,4 prósentur frá fyrri mánuði þegar hún mældist 4,2%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,31% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,5% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis dróst saman um 0,2 prósentustig milli mánaða en hún mældist 2,7% í febrúar.

Í tilkynningu Hagstofunnar segir að verð á mat og drykkjarvörum hafi hækkað um 0,7% milli mánaða og reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði.

Verðbólgan undir spám bankanna

Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans höfðu spáð því að verðbólgan myndi hjaðna úr 4,2% í 3,9% í febrúar. Greining Íslandsbanka hafði spáð því að vísitalan myndi hækka um 0,5% í mars og hagfræðideild Landsbankans gerði ráð fyrir 0,54% hækkun.

Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 21. maí næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti um 0,25 prósentur, úr 8,0% í 7,75% við síðustu vaxtaákvörðun þann 19. mars síðastliðinn.