Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins og nýr formaður ráðgjafarnefndar EFTA, segir íþyngjandi regluverk og gullhúðun áhyggjuefni á Íslandi.
„Við verðum að standa betur með okkur sjálfum. Við erum ekki að standa mjög mikið með okkur sjálfum þegar við erum að setja kröfur á íslenskt atvinnulíf sem eru meiri en kröfur á atvinnulíf annars staðar. Það dregur úr verðmætasköpun og það er allra tap og sóun fólgin í því. Það er enginn sem græðir á því að kröfur séu meira íþyngjandi en lágmarkskröfur gera ráð fyrir,“ segir Sigríður.
Sigríður segist almennt hafa áhyggjur af stóru regluverki sem kemur hingað til lands frá ESB en innleiðing þess hefur breyst á síðustu árum.
„Við tökum hluta af málaflokkum ESB inn í EES-samninginn en löggjöfin hefur breyst þannig að hún er núna lárétt og tekur á mörgum málaflokkum. Það þarf því að taka oftar afstöðu til þess hvað á heima inni í EES samningnum og hvað ekki,“ segir Sigríður.
„Við höfum áhyggjur af ákveðnum atriðum í orku-, umhverfis- og loftslagspökkunum og iðnaðargerðunum frá Evrópusambandinu,“ segir Sigríður og nefnir CBAM (e. carbon border adjustment mechanism) sem dæmi sem snýr að kolefnisgjöldum á innflutning til Evrópu. Nú þegar eru há kolefnisgjöld í ETS-kerfinu en breytingin sextánfaldar kostnaðinn. Árið 2017 kostaði losun á hverju tonni af CO2 innan ETS-kerfisins 5 evrur en núna er verðið komið í 80 evrur.
Uppleggið með CBAM er að jafna kolefnisgjöld yfir landamæri þannig allir standi jafnt á evrópskum markaði en gagnrýnisraddir segja að innleiðing þeirra skekki samkeppnisstöðuna enn frekar.
Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild sinni hér.
Boðaðar breytingar áhyggjuefni fyrir áliðnað
Í umsögn Samtaka iðnaðarins við uppfærðum forgangslista stjórnvalda um hagsmunagæslu Íslands gagnvart ESB er ítrekað fyrir stjórnvöldum að gagna ekki lengra í kröfum og íþyngjandi ákvæðum en þörf er á hverju sinni. Þar segir að boðaðar breytingar með CBAM (e. carbon border adjustment mechanism) séu verulegt áhyggjuefni i fyrir evrópskan, og þar með íslenskan áliðnað.
„Að mati hagsmunaaðila virðist sem markmiðið um að koma í veg fyrir kolefnisleka hafi þar algjörlega mætt afgangi. Yfirlýst markmið CBAM er meðal annars að jafna samkeppnisstöðu evrópsks áliðnaðar gagnvart áliðnaði utan álfunnar, en miðað við fyrirliggjandi gögn og drög að regluverki stefnir þvert á móti í að samkeppnisstaðan skekkist enn frekar.”
Að mati SI getur þetta haft alvarlegar afleiðingar fyrir áliðnað í Evrópu sem á nú þegar undir högg að sækja, en á meginlandinu hefur álframleiðsla dregist saman um 50% frá árinu 2021.