Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, telur mun skynsamlegra að byggja upp þá alþjóðlegu flugvelli sem Íslendingar séu með frekar en að byggja nýjan flugvöll.

Í samtali við Morgunblaðið segir hann að það hafi ekki komið sér á óvart að hægt væri að reka flugvöll í Hvassahrauni en telur það hvorki raunhæft né skynsamlegt.

Skýrsla starfshóps um rannsóknir á byggingu flugvallar í Hvassahrauni var kynnt í fyrradag en helstu niðurstöður voru þær að veðurskilyrði mæltu ekki gegn byggingu flugvallar í Hvassahrauni.

Meðal tillagna hópsins var að skilgreint svæði yrði tekið frá upp að Hvassahrauni fyrir þrjár flugbrautir og að unnið yrði að frekari rannsóknum.

„Flugstöðin í Reykjavík er hvorki boðleg starfsfólki né farþegum og meðan flugvöllurinn er alltaf í pattstöðu er erfitt að framkvæma og fjárfesta þar. Það er mikilvægt að leysa úr þessari stöðu og fara í þá uppbyggingu sem er algjörlega nauðsynleg,” segir Bogi í samtali við Morgunblaðið.