Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) hefur samþykkt samantekt á 4. yfirlitsskýrslu sinni um loftslagsbreytingar. Fundi nefndarinnar lauk í dag en nefndin hefur fundað á Spáni síðastliðna viku.

Í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu kemur fram að samantektin er ætluð stefnumótendum og í henni eru dregnar saman helstu upplýsingar um stöðu vísindalegrar þekkingar á loftslagsbreytingum – orsökum þeirra, umfangi og afleiðingum. „...einnig varðandi aðgerðir til að draga úr loftslagsbreytingum og aðlagast þeim. Skýrslan hefur komið út í þremur áföngum á þessu ári og er byggð á vinnu 2.500 vísindamanna. Hún er því viðamesta vísindalega samantekt sem gerð hefur verið um loftslagsbreytingar,“ segir í fréttatilkynningunni.

Vísindanefnd SÞ segir í samantekt sinni að hlýnun jarðar sé staðreynd og að spáð er 1,8-4°C hlýnun á þessari öld.

Í fyrrnefndri fréttatilkynningu frá Umhverfisráðuneytinu kemur fram að helstu meginniðurstöður nefndarinnar eru eftirfarandi:

- Vísindaleg vissa um loftslagsbreytingar af mannavöldum hefur aukist.
- Sjávarborð mun hækka um aldir; Norður-Íshafið verður nálega íslaust á sumrin fyrir aldarlok.
- Golfstraumurinn mun veikjast, en litlar líkur eru á stórfelldum breytingum á straumakerfi hafsins.
- Losun gróðurhúsalofttegunda heldur áfram að aukast.
- Miklir möguleikar eru á að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda á hagkvæman hátt.
- Aðgerðir næstu 2-3 áratugi til að draga úr nettólosun skipta miklu um árangur.