Verzlanahöllin opnaði á Laugavegi 26 í desember 2020 en þar geta viðskiptavinir leigt bása og selt notaðar vörur. Verslunin er í eigu þriggja mæðgna, Sveindísar Þórhallsdóttur, Þórdísar Þórhallsdóttur og móður þeirra Vilborgar Norðdahl.
Þórdís segir að básaleigur eins og Verzlanahöllin bjóði upp á fjölbreytt úrval þar sem fötin og vörurnar komi frá fólki úr öllum skala samfélagsins.
„Staðsetningin hjá okkur þýðir að við erum með mikið af ráðuneytum í kringum okkur, við erum með mikið af ferðamönnum og fullt af fyrirtækjum þar sem fólk er með há laun. En svo erum við líka með flóttamenn og fólk sem vinnur við skúringar, þannig við fáum allan skala af samfélaginu sama hvar það er statt í regnboganum eða í stéttinni.“
Þórdís segist oft útskýra fyrir erlenda starfsfólki sínu hvaða fólk það er sem kemur í verslunina, hvort sem það séu frægar poppstjörnur, rapparar eða ráðherra. „Það hjálpar líka þegar fólk eins og Eliza Reid talar um þetta en hún er til dæmis ekkert að fela það að hún kaupi notuð föt en er samt alltaf glæsileg til fara.“
Fjallað er um málið í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.