Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, vinnur nú að því að mynda teymi gervigreindarsérfræðinga.
Samkvæmt heimildum Bloomberg hefur Zuckerberg undanfarnar vikur fundað með fjölda sérfræðinga en hann er sagður stefna á að Meta taki fram úr öðrum tæknifyrirtækjum þegar kemur að þróun almennrar gervigreindar (e. artificial general intelligence, AGI), sem felur í sér þá hugsun að vélar geti unnið ýmis verkefni jafn vel og manneskjur.
Bloomberg greinir frá því að Zuckerberg stefni á að ráða um 50 einstaklinga í nýja „ofurgreindar“ rannsóknarteymi sitt en samhliða mun hann fjárfesta milljörðum dala í fyrirtækinu Scale AI.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 5.995 kr. á mánuði