Hallur Andrés Baldursson, stjórnarformaður ENNEMM, er launahæstur á lista yfir laun auglýsingafólks í Tekjublaði Frjálsrar verslunar, fjórða árið í röð. Launatekjur hans á síðasta ári námu rúmri 3,1 milljón króna á mánuði miðað við greitt útsvar.

Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi og eigandi hjá Aton, situr í öðru sæti listans með 2,2 milljónir í laun á mánuði.

Í þriðja og fjórða sæti listans eru Sveinn Líndal Jóhannsson og Hjörvar Harðarson hjá ENNEMM, báðir með um 1,8 milljónir króna mánuði.

Einar Logi Vignisson, auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins og framkvæmdastjóri RÚV Sölu, situr síðan í fimmta sæti listans með 1,7 milljónir króna á mánuði.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.