Hagur bílaverkstæða vænkaðist verulega á síðasta ári samanborið við árið 2022. Samanlagður hagnaður bílaverkstæðanna á meðfylgjandi lista yfir stærstu bílaverkstæði landsins samkvæmt ÍSAT atvinnugreinaflokkun nam 439 milljónum króna.

Árið áður nam samanlagður hagnaður bílaverkstæðanna 124 milljónum króna en árið 2021 nam hann 47 milljónum. Snemma á þarsíðasta ári voru allar sóttvarnatakmarkanir felldar á brott og má ætla að það hafi leitt til aukinnar bílaumferðar, enda sneru margir sem unnu fjarvinnu heiman frá meðan á faraldri stóð aftur á skrifstofuna. Samhliða aukinni bílaumferð má gera ráð fyrir að bilanatíðni og tjónum hafi fjölgað. Það virðist því vera að bílaverkstæðin hafi endanlega náð vopnum sínum á síðasta ári.

Öll bílaverkstæðin voru rekin með hagnaði á síðasta ári. Verulegur viðsnúningur varð hjá Sleggjunni atvinnubílum sem sneri 74 milljóna króna tapi í 68 milljóna hagnað á milli áranna 2022 og 2023.

Nánar er fjallað um málið í bók Frjálsrar verslunar, 500 stærstu, sem var að koma út. Hægt er að festa kaup á bókinni hér.