Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, er tekjuhæsti launþegi hagsmunasamtaka hérlendis. Á síðasta ári var hún með tæplega 4,8 milljónir króna í laun á mánuði.

Þetta kemur fram Tekjublaði Frjálsrar verslunar, sem fer í sölu í öllum helstu verslunum landsins um upp úr hádegi í morgun, þriðjudag.

Sá sem situr í öðru sæti á lista yfir starfsmenn hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins var í fyrsta sætinu í fyrra.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.