Ólafur Ragnar Gríms­son, fyrr­verandi for­seti Ís­lands, var með 4,7 milljónir í mánaðar­laun í fyrra sam­kvæmt Tekju­blaði Frjálsrar verslunar.

Aðrir fyrrum for­setar líkt og Guðni Th. Jóhannes­son og Vigdís Finn­boga­dóttir voru með tölu­vert lægri laun í fyrra. Guðni Th. var með tæpar 3,7 milljónir á mánuði á meðan Vigdís var með tæpar 3,2 milljónir.

Jens Garðar Helga­son, alþingis­maður og fyrrum að­stoðar­for­stjóri Kald­víkur, var tekju­hæstur meðal þing­manna en hann var með um 2,8 milljónir í mánaðar­laun í fyrra.

Hægt er að lesa meira um laun alþingis­manna, ráðherra og for­seta Ís­lands í Tekju­blaði Frjálsrar verslunar.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna út­gáfu Tekju­blaðsins er nauð­syn­legt að árétta að um er að ræða útsvars­skyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endur­spegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur auka­störf og hlunnindum vegna kaupréttar­samninga. Miðað er við útsvars­stofn sam­kvæmt álagningar­skrá. Í tölunum eru ekki fjár­magns­tekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hluta­bréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið ein­skiptis­greiðsla vegna út­tektar á sér­eigna­sparnaði hjá líf­eyris­sjóði.