Óskar Karl Guðmundsson situr í efsta sæti á lista yfir laun sjómanna í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í síðustu viku.

Óskar Karl, sem stundaði sjómennsku á eigin bát í mörg ár eftir því sem Frjáls verslun kemst næst, var með mánaðarlaun upp á 42,9 milljónir króna miðað við greitt útsvar.

Sigurður Bjarnason, skipstjóri hjá Loðnuvinnslunni, er í öðru sætinu á listanum. Sigurður, sem var efstur á sjómannalistanum fyrir árið 2022, var með mánaðarlaun upp á 9,6 milljónir í fyrra.

Efstu 21 einstaklingarnir á sjómannalistanum voru með yfir 5 milljónir króna í mánaðarlaun í fyrra. Allir á listanum voru með yfir 1,4 milljónir í laun á mánuði.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.