Hrafnarnir vita fátt skemmtilegra en að ráfa um ótal ganga hins býsanska stjórnkerfis Reykjavíkurborgar. Sem kunnugt boðuðu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs í vetur að gripið yrði til ráðningarbanns og vikið yrði frá þeirri stefnu að ráða í störf að óþörfu. Þessu banni hefur verið fylgt eftir af miklu harðfylgi.

Þannig auglýsti Reykjavík fyrir nokkru eftir skrifstofustjóra íþróttaborgarinnar en áður hafði borgin auglýst eftir verkefnastjóra framtíðar á umhverfissviði.

Þá er skrifstofa umhverfisgæða að leita að snillingi til að sjá um innleiðingu hringrásarhagkerfis.

En áhugaverðasta starfið sem nú er á lausu að mati hrafnanna er á einhverju sem heitir Afleysingastofa Reykjavíkur.

Í auglýsingunni segir: „Afleysingastofa leitar að starfsfólki í afleysingar á starfsstöðum Reykjavíkurborgar. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma virka daga og/eða um helgar á starfsstöðum Reykjavíkurborgar.“

Huginn og Muninn er einn af skoðanadálkum Viðskiptablaðsins.