Svo virðist sem dularfullur glæpur hafi verið framinn í úthverfi borgarinnar. Fólk stendur forviða frammi fyrir óútskýrðu hvarfi á miklum verðmætum úr skólabyggingu og fljótt kemur í ljós að þræðir atburðarásarinnar ná til efstu valdalaga samfélagsins.

Þetta er ekki skáldsaga eftir Raymond Chandler. Þetta er dagur í lífi Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra. Það er skammt stórra höggva á milli hjá Ingu.

Hún er vinsæll ræðumaður og ávarpaði hún til að mynda nýársfögnuð Kínverska sendiráðsins í Háskólabíó í síðustu viku. Í þessari viku hélt hún svo ræðu á opnum fundi HMS. Þar sagði hún meðal annars að lífeyrissjóðirnir ættu að koma að húsnæðisuppbyggingu í ríkari mæli með beinum hætti. Þetta þykir hröfnunum sérstakt því að þetta er sama Inga og vildi grafa undan þeim og ríkissjóði með því að skattleggja iðgjöld við inngreiðslu en ekki útgreiðslu eins og nú er.

Lífeyrissjóðir hafa reyndar komið að þessum markaði með beinum hætti með kaupunum á Heimstaden og þar af leiðandi á um 1600 íbúðum. En almennt séð hafa þeir ekki viljað vera beinir þátttakendur meðal annars vegna orðsporsáhættunnar sem kann að fylgja því að reita fólk eins og Ingu og pólitískra fylgihnatta hennar til reiði.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 29. janúar 2025.