Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og fasteignaspekúlant, sneri aftur til starfa eftir hlé í vikunni.
Hrafnarnir taka fagnandi á móti henni en að sama skapi sjá þeir eftir Elínu Írisi Fanndal varaþingmanni sem hefur haldið á lofti greinarskrifum með hástöfum á Vísi í fjarveru Ásthildar. Eftir var því tekið í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins á mánudag að Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður upplýsti um að Ásthildur hefði tekið þá ákvörðun að ræða ekki framar við Ríkisútvarpið.
Þannig heldur aðför þingmanna Flokks Ingu Sæland að fjölmiðlum áfram en sem kunnugt er þá hefur Sigurjón Þórðarson meðal annars hótað að skera niður fjárstuðning við fjölmiðla sem eru þeim ekki þóknanlegir. Það sem vekur annars athygli við ákvörðun Ásthildar er að hún er vafalaust tekin eftir samráð við Heimi Má Pétursson, aðstoðarráðherra og upplýsingafulltrúa flokksins, en hann situr einnig í stjórn RÚV.
Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.