Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkurborgar hefur sannarlega ekki setið auðum höndum frá því að hann tók við völdum.

Eitt af hans fyrstu verkum var að slá út af borðinu möguleikann á því að Róbert Wessman og félagar hjá Alvotech, eða hvað annað fyrirtæki, hafi möguleika á því að leysa leikskólavandann sem Samfylkingunni og fylgihnöttum hennar í meirihlutasamstarfi síðustu ára hefur mistekist að finna lausn á. Áhyggjur af því að fyrirtækjaleikskólar myndu bjóða leikskólakennurum hærri laun virðist það sem truflar nýjan meirihluta mest.

Þá samþykkti borgarráð tillögu ofurlaunakonunnar Heiðu Bjargar Hilmisdóttur um kaup á hlutum Orkuveitunnar og Faxaflóahafna í Malbikunarstöðinni Höfða. Þar með verður malbikunarstöðin í 100% eigu borgarinnar og fagna útsvarsgreiðendur því vafalaust að sú gullgæs renni þeim ekki úr greipum.

Eitt af fáum hægrimálum sem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Viðreisn fékk að setja á dagskrá á sjö árum sínum í meirihlutasamstarfi með vinstriflokkum var að stefnt skildi á sölu á Malbikunarstöðinni Höfða. Það gekk ekki betur en þetta.

Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.