Nýtt bankaráð Seðlabankans hefur verið kosið af Alþingi. Hrafnarnir telja einsýnt að Guðrún Johnsen verði næsti formaður bankaráðsins – sjálfsagt við mikinn fögnuð Ásgeirs Jónssonar og allra hinna seðlabankastjóranna í bankanum.

Líklega hefur Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri og hugmyndafræðingur Samfylkingarinnar, átt hugmyndina að því að tilnefna Guðrúnu. Það sýnir svo ekki verður um villst að hann er einn valdamesti maður flokksins um þessar mundir.

Annað sem vekur athygli við kjör bankaráðsins er hverjir fulltrúar Viðreisnar eru. Það eru Gylfi Zoëga sem aðalmaður og Katrín Ólafsdóttir sem varamaður. Við „siðaskiptin“ árið 2009, þegar lögum um Seðlabankann var breytt og peningastefnunefnd komið á laggirnar, voru tveir óháðir fræðimenn settir í nefndina. Það voru einmitt þau Gylfi og Katrín – sem voru þá algjörlega óháð.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 25. júní 2025.