Ingu Sæland og félögum í Flokki fólksins hefur á mettíma tekist að sanna það sem margir óttuðust, að flokkurinn sé óstjórntækur. Hvort Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem telur Sjálfstæðisflokkinn óstjórntækan, sé sammála því mati skal ósagt látið.
Aftur á móti virðast sumir samflokksmanna hennar þó hafa áttað sig á þessu en Hjálmar Gíslason, stofnandi Grid og einn eigenda Heimildarinnar, benti til að mynda á í færslu á Facebook að það þurfi bara Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur yfir í Viðreisn til að skipta Flokki fólksins úr fyrir Framsókn.
Vilhjálmur Þorsteinsson, fyrrum gjaldkeri Samfylkingarinnar og einn eigenda Heimildarinnar, tók vel í þessa hugmynd og sagði í athugasemd við færsluna að það væri mjög fínt að fá Þórdísi Kolbrúnu yfir í Viðreisn „óháð öllu öðru“.
Þórdís Kolbrún ítrekaði nýverið að afstaða hennar til inngöngu í ESB hafi ekki breyst og eru hrafnarnir því ansi hræddir um að draumur þeirra félaga um að fá Framsókn í ríkisstjórn verði ekki að veruleika í bráð.
Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.