„Ávallt hafna fyrsta tilboðinu,“ glumdi í höfði Hómers Simpson þegar hann gekk til samningaviðræðna við Montgomery Burns fyrir hönd verkalýðsfélags kjarnorkuversstarfsmanna í Springfield. Hann rauk á dyr og skellti hurðinni á eftir sér þegar Burns bauð honum vatnsglas við upphaf fundarins

Hrafnarnir gefa sér að Ármann Þorvalds son, forstjóri Kviku, hafi séð The Simpsons í gegnum tíðina. Því kom það þeim ekki á óvart þegar bankinn hafnaði samrunaviðræðum við bæði Arion og Íslandsbanka í síðustu viku. Það fylgdi sögunni að stjórn Kviku væri reiðubúin að endurskoða ákvörðunina – ef hinir bankarnir væru tilbúnir að endurmeta verðmat sitt á Kviku.

Það verður því spennandi að fylgjast með framhaldinu og hversu langt Arion og Íslandsbanki eru reiðubúnir að ganga til að yfirbjóða hvor annan. Ármann virðist þannig vera með góð spil á hendi. En þetta gæti þó reynst tvíeggjað sverð. Ákvörðun Kviku gæti leitt til þess að annaðhvort Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, eða Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, beini sjónum sínum að Skaganum. Þá væri allt önnur staða komin upp – staða sem væri ekki endilega jafn hagfelld fyrir Kviku.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.