Hrafnarnir tóku eftir að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar kvartaði sáran undan skattalækkunum ríkisstjórnarinnar á árunum 2018 til 2019 í Markaðnum, hlaðvarpi Ólafs Arnarsonar fyrrum formanns Neytendasamtakanna, á dögunum.

Kristrún sagði þessar breytingar vera ástæðuna fyrir hallarekstri ríkissjóðs og viðvarandi verðbólgu. Hröfnunum þykir þetta nokkuð merkileg yfirlýsing frá formanni Samfylkingarinnar.

Skattkerfisbreytingin sem þarna um ræðir var gerð í tengslum við gerð lífskjarasamninganna og fól meðal annars í sér að nýtt tekjuskattsþrep fyrir þá lægst launuðu var kynnt til sögunnar. Það er greinilegt að Kristrún telur skattalækkanir á lægstu launin vera rót efnahagsvandans í dag.

Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 25. október.