Sumarið er Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni og formanni atvinnuveganefndar, ofarlega í huga.

Þannig kom fram í frétt á mbl.is að hann óttaðist að þingstörf myndu jafnvel dragast fram í ágúst. Öllu bjartara var yfir Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, sem sagði þingið alvant því að vinna hratt á lokasprettinum.

Hrafnarnir furða sig á hve miklar áhyggjur fjölmiðlar og þingmenn stjórnarflokkanna hafa af því að þriggja mánaða sumarfrí Alþingis haldist óskert. Það að stjórnarandstaðan hafi ýmislegt út á illa unninn frumvörp, á borð við hækkun veiðigjalda, að setja er að mati stjórnarliða málþóf.

Þó að hrafnarnir myndu helst vilja að Alþingi væri í sumarfríi allt árið um kring, svo að það valdi ekki meiri skaða en það hefur þegar gert, vorkenna þeir þingmönnum lítið fyrir að þurfa að vinna aðeins fram á sumar.

Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.