Þáttaskil hafa átt sér stað í Evrópuumræðunni á Íslandi. Hvorki meira né minna! Það segir Þorsteinn Pálsson að minnsta kosti.
Þessi straumhvörf eru til kominn vegna yfirlýsingar Árna Þórs Sigurðssonar fyrrum þingmanns Vinstri grænna um stuðning við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald umsóknar um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Litlu verður vöggur feginn og hrafnarnir efast um að skoðun Árna Þórs, sem flestum er gleymdur og sat á þingi fyrir flokk sem á ekki lengur fulltrúa á þingi, marki nokkur þáttaskil í Evrópuumræðunni hér á landi.
En málið kann að horfa öðruvísi séð af kögunarhóli Þorsteins og væntanlega mun draga til frekari tíðinda þegar Þór Saari og Lilja Mósesdóttir gefa upp sína afstöðu til málsins.
Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.