Nýr Bugatti Tourbillon ofurbíll mun koma á markað árið 2026. Þessi sportbíll verður ekkert letidýr heldur skilar tvinnvél bílsins alls 1.774 hestöflum. Geri aðrir betur.

Bugatti hefur smíðað marga ofurbíla í gegnum tíðina eins og Veyron og Chiron og nú bætist nýjasti fjölskyldumeðlimurinn við. Tvinnvél bílsins samanstendur af þremur rafmótorum og 25kWh rafhlöðupakka. Þá er 8,3 lítra V16 bensínvél með í tvinnpakkanum. Samanlagt skilar tvinnvélin 1.774 hestöflum sem er alveg með gríðarlegt afl. Ein sér skilar V16 vélin 987 hestöflum sem ekkert smáræði heldur.

Bugatti Tourbillon mun ná 100 km hraða á tveimur sekúndum að sögn framleiðandans og 199 km hraða á undir fimm sekúndum. Hámarkshraði Bugatti Tourbillon er 442 km/klst.

Tourbillon kemur í framleiðslu árið 2026 og verður hann fyrsti framleiðslubíllinn sem er með V16 vél í yfir 85 ár. Bugatti hefur tilkynnt að Tourbillon muni verða með 59 km rafmagnsdrægni.

Tourbillon er einnig fyrsti Bugatti-bíllinn sem er með upplýsinga- og afþreyingarskjá. Alls verða verða framleiddir 250 Bugatti Tourbillon bílar og verðið byrjar á 3,8 milljónum evra.