Hann var sölustjóri bæði fyrir BMW og Land Rover en færði sig um set innan BL samsteypunnar og tók við sem sölustjóri á Land Rover-Jaguar merkjunum fyrir nokkrum árum þegar fyrirtækið opnaði glæsilegan sýningarsal á Hesthálsi fyrir bresku lúxusbílamerkin.

,,Bílaáhugi og ástríða fyrir merkinu sem ég er að selja skiptir mig miklu máli. Eftir 28 ár í starfi liggur í hlutarins eðli að ég á stóran hóp fastra viðskiptavina. Samkipti við fólk og nýjar áskoranir sem fylgja breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu gefa mér líka mjög mikið,“ segir Karl.

Hver er uppáhaldsbíllinn sem þú hefur ekið?

„Ég verð að nefna BMW Z8 sem ég reynsluók í Ungverjalandi. Hann var mjög eftirminnilegur bíll. Ég hef líka upplifað margar nýjar útfærslur af Range Rover. Það er skemmtilegt hversu framleiðandandum tekst ávallt að gera góðan bíl enn betri.“

Uppáhaldsbíllinn sem þú hefur átt?

„Fyrsti bíllinn sem ég eignaðist var Mazda 323 sp. Ég keypti hann nýjan þegar ég var 19 ára. Ég tók stundum unga vinkonu mína reglulega á rúntinn í þessum bíl og hún er konan mín í dag. Hann verður af þeim sökum uppáhaldsbíllinn minn.“

Nánar er fjallað um málið í Bílablaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.