Laxveiðitímabilið hófst um síðustu mánaðamót. Raunar gerðust þau fágætu tíðindi að annað árið í röð var fyrsta laxinum landað í Skugga, ármótum Grímsár og Hvítár í Borgarfirði. Líkt og fyrir ári var það Mikael Marinó Rivera grunnskólakennari, sem kennt hefur fluguveiði sem valfag í Rimaskóla í Grafarvogi, sem landaði laxinum þann 25. maí.
Urriðafoss í Þjórsá opnaði 1. Júní og komu 12 laxar á land fyrsta daginn. Sautján laxar komu á land fyrsta daginn í Norðurá en hún opnaði þann 4. júní. Opnunarhollið í Blöndu landaði tveimur löxum en áin opnaði 5. júní. Þó þetta sé ekki mikil veiði í Blöndu þá er vert að geta þess að síðustu tvö ár hefur opnunarhollið þar ekki náð laxi.
Þverá í Borgarfirði opnaði svo þann 10. júní og náðu veiðimenn að landa tíu löxum fyrsta daginn.
Þessa dagana eru laxveiðiárnar að opna hver af annarri. Upp úr næstu mánaðamótum ættu línur að fara að skýrast í laxveiðinni og þá sérstaklega eftir stórstreymið þann 13. júlí.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 5.995 kr. á mánuði