Laxveiðitímabilið hófst um síðustu mánaðamót en fjallað er um stangaveiði í sérblaðinu Veiði, sem fylgdi Viðskiptablaðinu.

Þau tíðindi gerðust nú í lok maí að annað árið í röð var fyrsta laxinum landað í Skugga, ármótum Grímsár og Hvítár í Borgarfirði. Líkt og fyrir ári var það Mikael Marinó Rivera grunnskólakennari, sem kennt hefur fluguveiði sem valfag í Rimaskóla í Grafarvogi, sem landaði laxinum þann 25. maí.

Urriðafoss í Þjórsá opnaði 1. Júní og komu 12 laxar á land fyrsta daginn. Sautján laxar komu á land fyrsta daginn í Norðurá en hún opnaði þann 4. júní. Opnunarhollið í Blöndu landaði tveimur löxum en áin opnaði 5. júní. Þó þetta sé ekki mikil veiði í Blöndu þá er vert að geta þess að síðustu tvö ár hefur opnunarhollið þar ekki náð laxi.

Þverá í Borgarfirði opnaði svo þann 10. júní og náðu veiðimenn að landa tíu löxum fyrsta daginn.

Þessa dagana eru laxveiðiárnar að opna hver af annarri. Upp úr næstu mánaðamótum ættu línur að fara að skýrast í laxveiðinni og þá sérstaklega eftir stórstreymið þann 13. júlí.

Birna Harðardóttir með fallegan lax úr Urriðafossi í Þjórsá.
Stefán Sigurðsson, sem rekur Iceland Outfitters með eiginkonu sinni Hörpu Hlín Þórðardóttur, veiddi fyrsta laxinn í Urriðafossi í Þjórsá. Laxinn tók í fyrsta rennsli þann 1. júní.
Matthías Stefánsson með fallegan 96 sentímetra hæng sem hann fékk á opnunardegi Urriðafoss í Þjórsá.
Norðurá opnaði þann 4. júní og landaði Brynjar Þór Hreggviðsson, annar af umsjónarmönnum árinnar, fyrsta laxinn þetta sumarið. Laxinum landaði Brynjar á Eyrinni og tók hann fluguna Collie Dog.
Veiði- og veitingamaðurinn Nuno Alexandre Bentim Servo með fallegan lax sem hann landaði í Stekkjarfljóti í Norðurá.
Ævar Örn Úlfarsson hjartalæknir með einn silfraðann sem tók fluguna Valbein á Eyrinni í Norðurá.
Árni Baldursson, einn þekktasti veiðimaður landsins, með 86 sentímetra hrygnu sem hann veiddi opnunarholli Blöndu morguninn 7. júní. Laxinn tók Þýska Snældu á Breiðunni að norðanverðu.
Reynir Sigmundsson með fallega 92 sentímetra hrygnu sem veidd var á Breiðu suður í Blöndu.
Kristján Páll Rafnsson búinn að háfa laxinn sem Reynir tók á Breiðunni í Blöndu.
Þverá opnaði þann 10. júní og hér er Erik Koberling að þreyta lax í Ármótakvörn. Styrmir Elí Ingólfsson Vigdísarson er úti í með háfinn.

Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Veiði sem fylgdi Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér.