Sigurjón Ernir Sturluson er eigandi hóptímastöðvarinnar UltraForm en hann rekur stöðina ásamt kærustunni sinni, Símonu. Ultraform er með útibú bæði í Grafarvogi og á Akranesi en áherslan hjá þeim er á úthald, styrk, liðleika, samhæfingu og snerpu.
Samhliða hóptímaþjálfuninni er Sigurjón Ernir með hlaupahóp, hlaupafjarþjálfun, UltraForm hlaðvarp og lífstílsþjálfun. Hann er í hópi fremstu utanvegahlaupara hér á landi og hefur átt mjög góð hlaup í sumar þar sem hann sigraði 53 km Hengill Ultra (2.000 m hækkun) og 43 km Esju Ultramaraþon (3.600m hækkun). Sigurjón deilir æfingu vikunnar að þessu sinni.
Upphitun:
- 10 - 12 mín rólegt skokk
- 10/10 sveifla öðrum fætinum fram og aftur (hreyfiteygja)
- 10/10 sveifla öðrum fætinum til hliðar (hreyfiteygja)
- Teygja vel á kálfum og opna mjaðmir
Aðalþáttur:
6 umferðir af:
- 2 - 4 mín nokkuð hratt hlaup
- 2 mín pása eða mjög rólegt skokk
Fókus yfir æfinguna:
Halda nokkurnvegin sama meðalhraða gegnum alla æfinguna og ná púlsinum vel niður milli spretta/lota.
Niðurlag:
- 10 - 12 mín rólegt skokk
- Teygjur