Á síðasta ári kynnti Porsche sérstaka 50 ára afmælisútgáfu af hinum goðsagnakennda 911 Turbo. Afmælisútgáfan var einungis framleidd í 1.974 eintökum en það var árið sem 911 Turbo kom fyrst á götuna.
Gefst fólki nú færi á að sjá bíl nr. 570 með eigin augum í sýningarsal Porsche á laugardag en um er að ræða einstakt tækifæri þar sem bíllinn er einungis til sýnis þann dag.
911 Turbo hefur frá upphafi sett viðmið í afköstum og akstursánægju. Afmælisútgáfan ber áfram þá arfleifð með kraftmikilli vél, háþróaðri loftaflfræði og óviðjafnanlegri aksturseiginleikum. Með einstökum útlitsbreytingum og sérsniðnum innréttingum heiðrar Porsche söguna en fangar einnig nýsköpun nútímans.
„911 Turbo hefur verið tákn hraða og framsækinnar hönnunar í hálfa öld og þessi afmælisútgáfa endurspeglar sögu Porsche og framtíðarsýn. Við hlökkum til að taka á móti aðdáendum Porsche og bíláhugamönnum, sjón er sögunni ríkari,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.
Frumsýningin fer fram á laugardag frá 12-16 í sýningarsal Porsche á Krókhálsi 9.