Ágústa Hrund Steinarsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa, segir að með því að taka í notkun vistvæn ökutæki stigi fyrirtækið markviss skref í átt að orkuskiptum í þungaflutningum á landi.
Hún segir reynsluna góða af rafmagnsvörubílnum sem fyrirtækið noti á Suðurlandi og svo verði spennandi að taka á nýju ári í notkun vörubifreið frá MAN sem brennir vetni.
„Sjálfbærni og aðgerðir til að takmarka umhverfisáhrif starfseminnar er samofin kjarnastefnu Samskipa og við erum stolt af því að hafa tekist á hendur forystuhlutverk í að innleiða notkun vistvænna ökutækja í þungaflutningum,“ segir hún.
Sá fyrsti af tveimur rafmagnsvörubílum Samskipa, sem var tekinn í notkun í vor, ekur með vörur víðs vegar um Suðurland. Um er að ræða Mercedes Benz eActroz 300 vöruflutningabíl með um 330 kílómetra drægni, sem stendur vel undir flutningum á svæðinu.
Nánar er fjallað um málið í Bílablaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.