Fótboltastjarnan David Beckham verður talsmaður, eða svokallaður „global brand ambassador“, netverslunartorgsins AliExpress, sem er í eigu kínverska verslunarrisans Alibaba.

Fótboltastjarnan David Beckham verður talsmaður, eða svokallaður „global brand ambassador“, netverslunartorgsins AliExpress, sem er í eigu kínverska verslunarrisans Alibaba.

Fer Beckham til að mynda með aðalhlutverk í auglýsingaherferð sem sýnd verður samhliða Evrópumótinu í fótbolta, sem hefst um miðjan júní, þar sem neytendur eru hvattir til að „skora meira með AliExpress“.

Um er að ræða stærsta samstarfssamning sem Alibaba hefur undirritað til þessa en fjöldi sambærilegra kínverskra fyrirtækja hefur verið í svipaðri útrás á alþjóðlegum markaði. Ekki liggur fyrir hversu háa upphæð Beckham fær fyrir samstarfið.