Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, jafnaði sinn besta árangur um síðustu helgi er hann hafnaði í 5.-6. sæti á Ecco mótinu í Óðinsvéum í Danmörku. Hann fékk 5.850 evrur, eða um 530.000 kr. fyrir árangur sinn, sem er það mesta sem hann hefur fengið fyrir árangur í einu móti. Þar með er hann búinn að vinna sér inn 1,3 milljónir króna á Áskorendamótaröðinni. Það er hærri upphæð en hann vann sér inn í fyrra.
Birgir Leifur var í 118. sæti á styrkleikalista Áskorendamótaraðarinnar fyrir mótið í Danmörku, en árangurinn lyftir honum upp listann og er hann nú í 81 sæti. Í fyrra endaði hann tímabilið í 85. sæti á styrkleikalistanum. Sex mót eru eftir í ár og verður næsta mót í Svíþjóð í næstu viku.