Ný og umfangsmeiri breyting Arctic Trucks á Defendur 110 jeppa fyrir 35" dekk verður meðal þess sem verður kynnt á sérstakri vorsýningu hjá Land Rover á Hesthálsi á laugardag.

Breytingin ber heitið AT35 Plús og felur í sér gjörbreytt útlit frá fyrri sambærilegri breytingu á bílnum eins og myndin sýnir glögglega.

Með þessari nýju AT35 Plús breytingu, 20 tommu háum og 10 tommu breiðum felgum hækkar Defender um 77 mm sem framkallar meiri mýkt í akstri vegna belgmeiri dekkja sem styðja vel við framúrskarandi fjöðrunarkerfi Defender. Þessi breyting skilar sér einnig í meiri drifgetu og floti í snjó, sandi og aur.

Auk Defender AT35 Plús verða einnig í sýningasalnum við Hestháls fleiri gerðir Land Rover, s.s. Discovery, Range Rover og fleiri, sem allir eiga það sameiginlegt að komast hvert á land sem er í sumarfríinu fram undan með hjólhýsi.

Eitt slíkt verður einmitt til sýnis á staðnum, hið sterkbyggða þýska hálendishjólhýsi frá Cravler sem Tarandus, umboðsaðili framleiðandans hér á landi, kynnir fyrir gestum sýningarinnar sem haldin verður á laugardag klukkan 12-16.