Colas ehf. og Kraftur hf., umboðsaðili fyrir MAN vöru- og dráttarbíla, undirrituðu á föstudaginn síðasta fyrsta kaupsamninginn um vetnisknúinn vörubíl og er bíllinn væntanlegur til landsins í lok árs.

Um er að ræða fullbúinn 520 hestafla MAN-vörubíl en heildarþungi hans er 49 tonn og kemst hann 600-700 km á hverri áfyllingu.

Áður höfðu félögin og nokkur önnur undirritað viljayfirlýsingu um kaup á slíkum bílum til landsins í tengslum við verkefni sem Íslensk Nýorka stendur að en nú er verkefnið orðið að veruleika.

„Þetta er gríðarlega spennandi verkefni. Colas heldur áfram á þeirri vegferð að farartæki og bílar framtíðarinnar verði knúin umhverfisvænum orkugjöfum. Við höfum gríðarlega trú á vetninu og það verði orkugjafinn sem stærri vinnuvélar og stærri vörubílar komi til með að nota, þar sem rafmagnið hentar síður,“ segir Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas.

Björn Erlingsson, framkvæmdastjóri Krafts hf., tekur í sama streng og segir undirritun kaupsamnings virkilega ánægjulega.

„Þessi kaup marka tímamót í sögu umhverfisvænna orkugjafa. MAN hefur langa sögu um vetnisdrifna bíla, og kynntu árið 1996 fyrstu vetnisdrifnu strætisvagnana. Með undirskrift sinni staðfesta ráðamenn Colas stefnu sína að nota eins mikla umhverfisvæna orku og mögulegt er,“ segir Björn.