Menntakerfi landsins kennir okkur ýmislegt, bæði gagnlega hluti og annað sem nýtist okkur ekki jafn vel. Fjármálalæsi er einn þeirra þátta sem fær ekki nægilegt pláss í námskránni að mínu mati, sé tekið mið af mikilvægi þess.
Launahækkun, hærri eftirlaun og skattfrjáls peningur til útborgunar í fyrstu íbúð hljómar mjög vel í mínum eyrum. En hvað get ég gert til að tryggja mér þau fríðindi?
Á vef Almenna lífeyrissjóðsins er greinagóð skýring á viðbótarlífeyrissparnaði. Ég tók saman nokkra punkta sem gætu hjálpað ungum sem öldnum.
Eftirlaun
- Öllum vinnandi einstaklingum á aldrinum 16 – 70 ára ber skylda að greiða í lífeyrissjóð. Þegar einstaklingarnir fara á eftirlaun fá þeir greitt úr sjóðnum. Eftirlaun eru að meðaltali töluvert lægri en meðaltekjur fólks yfir starfsævina.
- Að greiða í séreignarsjóð er leið til að hækka eftirlaunin. Þegar samningur um viðbótarlífeyrissparnað er gerður hafa einstaklingar val um að greiða 2% eða 4% af laununum sínum. Launagreiðandi ber þá skylda til að greiða 2% mótframlag. Það má því segja að einstaklingar sem borga í séreignarsjóð fái 2% launahækkun á mjög auðveldan hátt.
- Þar sem viðbótarlífeyrissparnaður er ekki skylda er það á ábyrgð launþeganna að skila inn samningi til launagreiðanda. Samningarnir eru gerðir í gegnum þann lífeyrissjóð eða banka sem einstaklingur velur sér að borga í.
- Þegar einstaklingar sem hafa greitt í séreignarsjóð yfir ævina fagna 60 ára afmæli opnast viðbótarlífeyrissparnaðurinn og er laus til úttektar. Það er frjálst hvernig sparnaðinum er ráðstafað.
Fyrstu kaup
- Annar mjög stór kostur þess að borga í séreignarsjóð, sérstaklega fyrir unga fólkið, er sá að hægt er að nýta viðbótarlífeyrissparnaðinn við kaup á fyrstu fasteign. Bæði er hægt að nýta sparnaðinn til útborgunar á fyrstu kaupum eða til að greiða inn á húsnæðislán. Báðir kostirnir eru skattfrjálsir.
- Árleg hámarksupphæð sem einstaklingur má nýta er 500.000 kr. Athugið að upphæðin gildir um einstaklinga sem þýðir að ef sambýlisfólk hyggst festa kaup á sinni fyrstu eign þá geta þau nýtt samtals 1.000.000 kr á ári. Eftir að heimildin hefur verið nýtt endist hún í tíu ár.