Líkt og undanfarin ár verða gervijólatré töluvert algengari á heimilum landsmanna um jólin heldur en lifandi tré. Litlar breytingar virðast hafa orðið á jólatrjáahefðum frá því í fyrra. Í ár sögðust 54,8% svarenda ætla að hafa gervitré og 32,3% lifandi tré en 13% munu ekki setja upp neitt jólatré á heimili sinu í ár.
Það var MMR sem framkvæmdi könnunina um það hvort jólatré verði á heimilum landsmanna í ár. Könnunin var framkvæmd dagana 12. til 15. desember 2017 og var heildarfjöldi svarenda 923 einstaklingar, 18 ára og eldri.
Helstu niðurstöður:
- Gervitré verða töluvert algengari á heimilum landsmanna um jólin heldur en lifandi tré.
- Tæp 55% Íslendinga munu setja upp gervitré og rúm 32% lifandi tré en 13% ætla ekki að setja upp jólatré.
- Íslendingar á aldrinum 30-49 ára eru líklegri en aðrir aldurshópar til að setja upp jólatré.
- Stuðningsfólk Pírata (16%) og Vinstri grænna (16%) reyndust líklegri en stuðningsfólk annarra flokka til að setja ekki upp jólatré en fylgjendur Miðflokksins (100%) og Flokks fólksins (98%) reyndust líklegust til að setja upp jólatré.
Spurt var: „Verður jólatré á þínu heimili í ár?“.
Svarmöguleikar voru: Já - lifandi tré, já – gervitré, nei og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 96,7% afstöðu til spurningarinnar.
Munur eftir aldri, tekjum og stuðningi við stjórnmálaflokka.
Þegar skoðaður var munur á milli aldurshópa reyndust Íslendingar á aldrinum 30-49 ára líklegri en aðrir aldurshópar til að setja upp jólatré. Af þeim sem tóku afstöðu og voru á aldrinum 30-49 ára sögðust 32% ætla að vera með lifandi jólatré og 59% með gervitré. Svarendur í aldurshópunum 18-29 ára og 68 ára og eldri reyndust líklegri en aðrir til að ætla ekki að setja upp jólatré eða 16%.
Íslendingar búsettir á landsbyggðinni (61%) reyndust líklegri en þeir búsettir á höfuðborgarsvæðinu (51%) til að setja upp gervitré. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu (15%) reynist þó líklegri en þeir á landsbyggðinni (10%) til að setja ekki upp jólatré.
Af stuðningsfólki stjórnmálaflokka reyndust fylgjendur Flokks fólksins (79%) og Miðflokksins (75%) líklegastir til að setja upp gervitré en fylgjendur Viðreisnar voru líklegastir til að setja upp lifandi tré (53%). Stuðningsfólk Pírata (16%) og Vinstri grænna (16%) reyndust líklegri til að setja ekki upp jólatré samanborið við stuðningsfólk annarra flokka en fylgjendur Miðflokksins (100%) og Flokks fólksins (98%) reyndust líklegust til að vera með jólatré.