Það er afar óvenjuleg sjón að sjá hundruði íslenska hesta, hvað þá miðborg stórborgar eins og Berlínar. Berlín er ókrýnd höfuðborg Evrópu þar sem Þýskaland er lang áhrifmesta land álfunnar.

Ástæðan er heimsmeistaramót íslenska hestsins sem haldið er í miðborg borgarinnar 4.-11. ágúst.

Klaus Wowereit borgarstjóri Berlínar bauð íslenska hestinn velkominn til borgarinnar við Brandenborgarhliðið í morgun. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hélt ræðu og forsetafrúin Dorritt Moussaieff steig á hestbak.

Hér má sjá viðtal við Ólaf Ragnar. Í seinnihlutanum ræðir hann um persónulega reynslu sína af íslenska hestinum.

Hestablaðið Eiðfaxi verður með stöðugan fréttaflutning frá mótinu á eidfaxi.is .

Ólafur Ragnar heldur ræður við Brandenborgarhliðð.
Ólafur Ragnar heldur ræður við Brandenborgarhliðð.

Dorrit forsetafrú við Brandenburgarhliðið í morgun.
Dorrit forsetafrú við Brandenburgarhliðið í morgun.

Borgarstjóri Berlínar, forseti Íslands og sendiherra Íslands í Berlín, fyrir miðju.
Borgarstjóri Berlínar, forseti Íslands og sendiherra Íslands í Berlín, fyrir miðju.