Landfari, umboðsaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi, opnar nýtt þjónustuverkstæði að Álfhellu 15 í Hafnarfirði nk. laugardag. Þá verður jafnframt nýr og byltingarkenndur eActros 600-rafmagnsvörubíll frumsýndur.

Gestir munu fá tækifæri til að sjá nútímalegt þjónustuverkstæði og skoða nýjustu atvinnubílana frá Mercedes-Benz og Setra, þar á meðal hinn nýja eActros.

Í tilkynningu segir að viðburðurinn marki tímamót fyrir Landfara sem hafi eflt þjónustu við atvinnubílaeigendur með opnun nýs verkstæðis sem er útbúið til að mæta kröfum nútímans bæði fyrir hefðbundna dísilbíla og rafmagnsbíla.

„Við erum sérstaklega spennt að kynna eActros 600, öflugasta fjöldaframleidda rafmagnsvörubílinn í heiminum í dag. Hann er ekki bara vistvænn heldur líka mjög öflugur, með drægni allt að 500 km á einni hleðslu,“ segir Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara.

Á sýningarsvæðinu verður einnig til sýnis fjölbreytt flóra af vöru- og hópferðabílum frá Mercedes-Benz, þar á meðal eActros 600, Actros ProCabin og Arocs ásamt Sprinter, Vito og Actros sendibílum ásamt Setra-hópferðarbílum.