Bergur Þorri Benja­míns­son, kennari og fyrrum for­maður Sjálf­bjargar, bendir á vægast sagt áhuga­verða hönnun hjóna­bergis í íbúð í Heklu­reitnum svo­kölluðum í Reykja­vík.

„Þegar ég skoðaði þessa teikningu gat ég ekki annað en hrist höfuðið,“ skrifar Bergur í færslu á Face­book.

„Hjónarúmið er kíttað inn í her­bergið,“ skrifar Bergur Þorri en hann vekur sérstaka athygli á því að tvær hurðir er út úr hjónaherberginu sem veldur því að það þyrfti því að klirfa yfir rúmið.


„Hvar endar þessi della í húsnæðis­málum?“skrifar Bergur Þorri.

Sjá má mynd af teikningunni og her­berginu sjálfu hér að neðan.

Örn V. Kjartans­son, fram­kvæmda­stjóri Heklu­reits, segir staðhæfingar sem Bergur Þorri Benja­míns­son hafi sett í færslu á Face­book um íbúð í Heklu­reit vera rangar.

„Um er að ræða hag­kvæma 68 fm íbúð (77 fm m/geymslu) sem er með tveimur svefn­her­bergjum en mikið ákall hefur verið eftir litlum þriggja her­bergja íbúðum á markaðnum.

Til að stækka al­rýmið í íbúðinni er gengið hvort sínu megin inn í her­bergið sem þó er tæpir 12 fm að stærð með góðum skápum. Lengd fyrir hjónarúm er 2,23 metrar,“ segir Örn í svari til Við­skipta­blaðsins.