Ford Bronco er Íslendingum mjög vel kunnugur enda var hann óhemjuvinsæll fyrir nokkrum áratugum og hans helstu aðdáendur hafa engu gleymt. Hönnuðir nýja Ford Bronco sóttu innblástur í gamla útlitið frá árinu 1966 og héldu í hrátt yfirbragð og ævintýraandann sem vissulega liggur yfir jeppanum.
Þessi skemmtilega skammstöfun, G.O.A.T., stendur á ensku fyrir „Goes Over All Terrain“, sem þýða mætti á íslensku sem „Kemst yfir hvers kyns torfærur“. Ford Bronco-bílarnir eru almennt búnir mörgum mismunandi G.O.A.T akstursstillingum og útfærslurnar sem eru í boði núna, Wildtrak og Raptor, eru með sex til sjö stillingar sem nánar er hægt að lesa um á vef Ford á Íslandi.
Öflugt H.O.S.S. fjöðrunarkerfi
H.O.S.S. skammtstöfunin stendur á ensku fyrir „Highspeed Off-road Suspension System“, sem þýða mætti á íslensku sem „Fjöðrunarkerfi fyrir hraðakstur í erfiðum aðstæðum“. Líkt og með G.O.A.T. akstursstillingarnar er mismunandi útgáfa af fjöðrunarkerfinu í hverri útfærslu af bílnum og lesa má nánar um fjöðrunina í Ford Bronco Wildtrak og Ford Bronco Raptor á vef Ford á Íslandi.
Það skiptir auðvitað miklu máli að hafa sem besta stjórn á bílnum í torfærum og erfiðum aðstæðum og þar koma rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi í Ford Bronco sterkar inn. Þær gera það að verkum að bæði hjólin á sama öxli snúast á sama hraða og dreifa aflinu jafnt til að gera aksturinn auðveldari.
![Ford Bronco Everglades, Raptor og Wildtrak. Bronco Raptor er hálfgerður stóri bróðir Wildtrak því hann er stærri og breiðari.](http://vb.overcastcdn.com/images/120135.width-800.png)
Nánar er fjallað um málið í Bílablaðinu, fylgiriti Viðskiptablaðsins.