Undirritaður hefur verið samningur á milli Vigors ehf., dótturfélags TölvuMynda, og Hafnarfjarðarbæjar um að uppfæra núverandi viðskiptahugbúnað bæjarfélagsins með Vigor Viðskiptahugbúnaði.

Vigor Viðskiptahugbúnaður er íslenskur en starfsmenn Vigors ehf. hafa hannað hann og framleitt. Hugbúnaðurinn hefur grafískt (Windows) viðmót og notar IBM iSeries (AS/400) tölvumiðlara og IBM Universal DB2 gagnagrunn. Meðal kerfiseininga Vigors Viðskiptahugbúnaðar eru fjárhagskerfi, viðskiptamannakerfi, greiningarskýrslur, rafrænt móttökukerfi reikninga með skönnun og samþykktarkerfi, afgreiðslu- og gjaldkerakerfi, eignakerfi, innheimtukerfi, kröfumiðlari, færslu- og greiðslumiðlari, innkaupa-, sölu- og vörukerfi. Hafnarfjarðarbær mun áfram nota Fasteignagjaldakerfi og ToppLaun en þau kerfi verða tengd við Vigor Viðskiptahugbúnað.

Vigor sérhæfir sig í gerð viðskiptahugbúnaðar, auk hugbúnaðar fyrir orkuveitur, og vinnur að ýmsum verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins, s.s. Byko, Eimskip, MasterCard á Íslandi, Orkuveitu Reykjavíkur, Orkubú Vestfjarða, Kassagerðina, Norðurorku og Tryggingamiðstöðina.

Vinna við innleiðingu búnaðarins er að hefjast en unnið er eftir PRINCE2 aðferðafræði við verkefnisstjórnun. Fyrsti áfangi innleiðingarinnar felst í að breyta fasteignagjaldareikningum úr A gíróseðlum í greiðsluseðla (Kröfupott RB og Höfuðbók 66) um áramótin og innleiða nýtt greiðslukerfi fyrir lánardrottna sem byggist á beinni vefþjónustu við fyrirtækjabanka viðskiptabankanna. Á næsta ári verða aðrir kerfishlutar innleiddir og er ráðgert að þeirri vinnu verði lokið á miðju ári 2006.